top of page

ÞAU Company er sjálfstætt þverfaglegt listafyrirtæki sem var stofnað af Rakel Björk Björnsdóttur og Garðari Borgþórssyni. Fyrirtækið vinnur á mörkum tónlistar, sviðslista og skapandi framleiðslu, þar sem listræn sýn, fagmennska og frumsköpun mynda grunn allrar starfsemi.
 

Markmið ÞAU Company er að skapa, þróa og framleiða metnaðarfull listaverk sem lifa á ólíkum miðlum og ná til fjölbreytts áhorfendahóps. Fyrirtækið byggir á þeirri hugmynd að tónlist, leikhús og lifandi viðburðir geti styrkt hvert annað og skapað sjálfbæran vettvang fyrir sjálfstæða listsköpun.
 

Undir merkjum ÞAU Company verða til tónlistarútgáfur, sviðsverk, tónleikar og aðrir menningarviðburðir, auk þess sem fyrirtækið rekur eigið hljóðver í Hafnarfirði, ÞAU Stúdíó, þar sem fram fer upptaka, framleiðsla og þróun nýrra verkefna.

Fyrirtækið heldur jafnframt utan um framleiðslu, bókanir og rekstur eigin verkefna og sinnir fjölbreyttum samstarfsverkefnum á sviði tónlistar, leikhúss og viðburðahalds.
 

Starfsemi ÞAU Company spannar meðal annars:

  • Þróun, upptökur og útgáfu frumsaminnar tónlistar

  • Rekstur ÞAU Stúdíó

  • Framleiðslu tónleika og lifandi viðburða

  • Þróun og framleiðslu leikhús- og sviðsverka

  • Bókanir og framkvæmd tónlistar- og sviðslistaverkefna

  • Listræna framleiðslu, verkefnastjórn og skapandi ráðgjöf

ÞAU
Company

mynd ÞAU.jpeg
  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • Spotify

Hafðu samband

843-0842 (+354)

© 2020 af Rakel Björk

bottom of page