top of page
Rakela-79.jpg
Rakela-81.jpg
Rakela-82.jpg
TÓNLISTARSAFNIÐ
söngkona og tónskáld
Rakel vinnur um þessar mundir að sóló plötu!
  • Instagram
  • Facebook
  • Spotify

Útgefið efni

md3dWYwE.jpeg
ÞAU taka Norðurland - Plötucover. Ljósmynd frá Ólafi Má Sigurðssyni..jpg
  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • Spotify

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk Björnsdóttir og gítar- og trommuleikarinn Garðar Borgþórsson.

​

Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.

​

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hlotið hafa góðar viðtökur, og fylgt þeim eftir með fjölda tónleika víða um land, og í Bæjarbíó og Hofi. ÞAU reka eigið hljóðver í Hafnarfirði, ÞAU stúdíó, og vinna nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.
 

ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og á Midgard og halda nú ferðalaginu áfram um landið sumarið 2026!

LISTAVERK.jpg
CTPpIyR3.jpeg
  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • Spotify

Í verkum Raddbandsins renna saman tónlist, húmor og leikhús þar sem þéttur samhljómur fær að njóta sín í frumsömdum textum við sígild jazz- og söngleikjalög.

Raddbandið skipa leik- og söngkonurnar Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. 
 

Hópurinn hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín, meðal annars fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins. Einnig hlaut Raddbandið mikið lof fyrir sýninguna Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúsinu, en sýningin snýr aftur á fjalirnar 2026!

S_SH2epH.jpeg

 

Rakel Björk syngur á þriðju plötu rokkhljómsveitarinnar different Turns, too asleep to hear the massive wind blow, sem kom út 25. nóvember 2022 í samstarfi við ÞAU Company. Platan, sem samin var af Garðari Borgþórssyni.
 

Garðar Borgþórsson – gítar, framleiðslu, hljóðblöndun

Rakel Björk Björnsdóttir – söngur

Hálfdán Árnason – bassi

Skúli Gíslason – trommur og slagverk

Agnar Már Magnússon – píanó

  • Spotify

© 2020 af Rakel Björk

bottom of page