top of page
Rakela-58.jpg

RAKEL BJÖRK

Leikkona & Söngkona & Tónskáld & Framleiðandi & Leikskáld

Rakela-5.jpg
  • Instagram
  • Facebook
  • Spotify

Hæ!
 

Takk fyrir að líta við á síðunni minni.

Þessi vefsíða er gluggi inn í minn listræna heim — verkefnin mín, ástríðurnar og sköpunarferðalagið sem ég er á.

Ég er alltaf á höttunum eftir einhverju nýju og krefjandi og elska að vinna með öðru skapandi fólki.
 

Verum í bandi!

Rakel Björk Björnsdóttir er sjálfstætt starfandi listakona á sviði tónlistar og sviðslista. Hún starfar sem söngkona, tónskáld, leikkona, leikskáld og framleiðandi, með áherslu á frumsamda og þverfaglega listsköpun. Rakel fléttar saman tónsmíðum og leikrænni tjáningu í verkum sínum með hljómsveitinni ÞAU, söng- og sviðslistatríóinu Raddbandinu og rokkhljómsveitinni different Turns, og sem sóló söngkona og sjálfstætt starfandi leikkona.
 

Rakel stundaði nám við Complete Vocal Institute, útskrifaðist sem leikkona frá Listaháskóla Íslands og lærði tónlistarviðskipti við Háskólann á Bifröst. Hún er eigandi ÞAU Company og rekur eigið hljóðver, ÞAU Stúdíó, í Hafnarfirði.
 

Sem söngkona og tónskáld í ÞAU hefur Rakel gefið út plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hún hefur fylgt eftir með tónleikaferðum um landið. Hljómsveitin vinnur nú að sinni þriðju plötu, ÞAU taka Suðurland, og um þessar mundir vinnur Rakel jafnframt að sinni fyrstu sólóplötu.
 

Eitt af nýjustu verkum Rakelar er söngleikurinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó, framleiddur af Raddbandinu, þar sem hún fer með hlutverk Prinsessu 9, auk þess að koma að verkinu sem leikskáld og tónskáld.
 

Sem leikkona hefur Rakel skapað sér sterkan sess í íslensku leikhúsi. Hún kom fram í Room 4.1 eftir Kristján Ingimarsson Company, sem sýnt var í Borgarleikhúsinu og síðar á CPH STAGE í Danmörku. Í Borgarleikhúsinu lék hún Fríðu Hugljúfu í söngleiknum Matthildi og túlkaði Bubba Morthens og tvær eiginkonur hans í verðlaunasöngleiknum 9 líf. Meðal annarra verkefna má nefna Sex í sveit, HARK, Ávaxtakörfuna, Ofurhetjumúsina og The Host í Kaupmannahöfn með Nordic Beasts. Í vetur kemur hún fram í sýningunni Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúsinu og gamanverkinu Heilsugæslan í Tjarnarbíó.
 

Rakel hefur einnig reynslu af kvikmyndaleik og talsetningu, meðal annars í verkunum Falskur fugl, Þrestir, Vitjanir og Áramótaskaupinu. Hún er rödd Isabelu Madrigal í Disney-myndinni Encanto.

RakelBjörk.jpg

MYNDIR

Augnlitur: Brúnn
Hárlitur: Brúnn
Hæð: 167 cm

Króli & Rakel Björk - Smellum saman

Samgöngustofa Myndbönd
Króli & Rakel Björk - Smellum saman
Króli & Rakel Björk - Smellum saman

Króli & Rakel Björk - Smellum saman

03:37
Níu líf - Rómeo og Júlía | Aron Már og Rakel Björk

Níu líf - Rómeo og Júlía | Aron Már og Rakel Björk

04:40
KVISS, BAMM, BÚMM - Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó

KVISS, BAMM, BÚMM - Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó

03:10
Níu líf | Stikla

Níu líf | Stikla

00:56

MYNDBÖND

HAFA SAMBAND

843-0842

© 2020 af Rakel Björk

bottom of page